Thursday, January 30, 2014

Biggest loser ofl

Nú er ég mætt í Þorlákshöfnina góðu, heim til mömmu og pabba.
Það sem það er gott að koma til þeirra og leyfa þeim aðeins að dekra við sig (enda finnst þeim það stórkostlega gaman gruna ég). Ég er búin að leyfa mömmu að elda góðann mat og nú stend ég í stórþvottum. 
Það er nefnilega eitthvað við það að geta skellt i þurrkara og sleppt því að hengja upp á snúrurnar í blokkar-þvottahúsinu. Það er fátt verra en að taka niður af snúrunum og finna blokkar fýlu af þvottinum manns. Um daginn var meira að segja rakspíralykt af nýþvegnum bol frá mér! 


En að málefnum málefnanna, BIGGEST LOSER Ísland!
Ég sat límd við skjáinn í kvöld að horfa á annann þátt af seríunni. Ég trúi ekki að það séu bara 9 þættir eftir af þessari snilld. Þið sem eigið eftir að sjá þáttinn bið ég um að lesa ekki lengra, spoiler alert! 

Nú höfum við misst okkar besta mann úr þættinum. Óðinn, you will be missed!
Það sem ég gat hlegið að loftlófa pumpinu hans í fyrsta þættinum. Ég mun einnig sakna frásagnanna hans frá 2005.
Mér finnst þessi þáttur tær snilld og gaman að sjá íslendinga í þessu. Auðvitað er hann hálf kjánalegur á köflum, en það virðast vera einhver lög sem fylgja íslenskum þáttum sem eiga erlenda fyrirmynd. 

Hverjum spáir þú sigri? Ég held klárlega með Önnu Lísu, annars gæti verið að Jóhanna mali þetta!

-K

Monday, January 27, 2014

Af fjöri og flúrum

Mánudagur gott fólk!
Það þýðir að það megi byrja að hlakka til næstu helgar af krafti. 
Ég er svo spennt fyrir 1. febrúar að mér líður eins og krakka á jólunum. 
Næsta laugardag er nefnilega gleðidagur mikill og það verður sko tjúttað!
Ég bið til hans gussa að ég verði orðin hundrað prósent þá, ég er nefnilega enn eins og undin tuska eftir ofurpest helgarinnar.

En að öðru. Ég er alveg að húðflúra í mig þessa dagana! Vandamálið er að ég veit ekki hvar ég á að setja það og get ekki valið hvað skal flúra. Ég er með svo margt í huga.

Fann mynd af þessu flúri. Ótrúlega hjartnæm setning, sem er tilvitnun úr The Kite Runner. Svona flúr finnst mér til dæmis rosalega flott og eitthvað sem maður getur stoltur orðið áttræður með. Síðan koma annarsvegar myndir eins og þessi hér fyrir neðan.

Finnst magnað hvað það er til mikið af skrítnu í heiminum. En hey, to each his own. Ekki ætla ég að dæma… okei, ég ætla bara að leyfa mér að dæma, bara aðeins! 

-K