Friday, August 1, 2014

Þol og styrktarpróf

Mig langaði að  sýna ykkur muninn sem einn mánuður í þjálfun getur gert. 
Eins glöð og ég er að vera að lækka í fituprósentu og að vera að missa kíló, þá er ég lang ánægðust með bætinguna hjá mér í þol- og styrktarprófinu sem Hafdís einkaþjálfari lét mig taka í byrjun þjálfunar og svo mánuði síðar. 
Coopers test er hlaupapróf þar sem að maður hleypur á hlaupabretti með hallann í 1°. 
Markmiðið er að hlaupa sem lengst á 12 mínútum.  Ég hélt náttúruleg að ég dræpist við þetta en það hafðist og ég er mjög ánægð með að hafa bætt mig á þessum mánuði þar sem að ég er alls engin hlaupatýpa. 
Í fyrra skiptið var ég með niðurstöðurnar Poor
Í það seinna var ég komin upp í Below Average.

Styrktarprófið var þannig að ég hafði mínútu á hverja æfingu og markmiðið var að ná sem flestum endurtekningum/ lengstum tíma.
Í fyrra skiptið gat ég gert 10 armbeygjur á tánnum og 4 á hnjánum.
Í það seinna gat ég orðið gert 30 armbeygjur á tánnum og 2 á hnjánum.
Í kviðaæfingunum bætti ég mig úr 54 í 73.
Í hnébeygjunum fór ég úr 42 endurtekningum yfir í 73,
Plankann er ég mjög ánægð með, fór úr 40 sek á tánnum og 10 sek á hnjánum yfir í 1 mín 10 sek á tánnum og 2 mín 20 sek á hnjánum.

Ég er ótrúlega ánægð með þessa bætingu, á ekki nema 24 dögum.

Læt fylgja með eina árangursmynd þar sem sést munurinn á andlitinu á mér.
Sú fyrri tekin í febrúar, hin tekin í lok júní.


Skemmtið ykkur fallega um helgina kids!
-K





Thursday, July 31, 2014

Fit fyrir 25

Fit fyrir 25 er hugmynd sem ég fékk þegar að ég heyrði um konu sem hafði það markmið að hlaupa heilt maraþon þegar hún yrði fimmtug. 
Verandi með hlaupaþol í algjöru lágmarki, of feit og algjörlega úr formi ákvað ég að ég ætlaði að vera þessi týpa þegar ég verð fimmtug.

Þann 29. september n.k. verð ég 25 ára og ég er að vinna af hörku í því að ná mínum markmiðum fyrir það. Það er þó bara fyrsta stopp þar sem að ég ætla að sjálfsögðu að halda áfram og klára núverandi markmið svo að ég geti sett mér ný sem verða öflug og gríðarlega spennandi.

Það blundar í mér að langa að blogga um þetta ferli mitt þar sem að ég held að það haldið mér við efnið og sjálfri þykir mér alveg ótrúlega gaman að fylgjast með öðrum fara í gegnum þetta allt.
Kannski ef ég verð nógu og hugrökk læt ég verða af því!

Skrapp á útsölu í Altis í dag og keypti mér under armour föt á frábærum afslætti! 
Toppur, bolur og buxur rötuðu með mér heim. Það er nú mikilvægt að verðlauna sig.


Alls -4,4 kg farin og búin að lækka um -10% í fituprósentu.

Langt í land en ég sigli í gegnum þetta á temmilegum hraða!

-K