Thursday, November 7, 2013

Bikiní-babe

Hæ, ég heiti Kolbrún og ég sýndi öllum í Sundhöll Reykjavíkur mitt heilagasta í dag!
Já, daman var víst ekkert svakalega mikil dama, að því er virðist, þegar að hún fór í sund í bikiníi sem var nú orðið tæpt í gegnsæji en aldrei grunaði mig að það væri orðið svona snargegnsætt! 
Eftir smá stund í pottinum (ekki langa stund þó því að það var ekkert rætt nema einhver bévítans fótboltaleikur sem verður á laugardaginn) skellti ég mér uppúr og gerði þau mistök að stoppa fyrir framan spegil. Já krakkar mínir! Bleika bikiníið mitt var orðið svo gegnsætt að þetta var nánast eins og ég væri klædd í rúðugler.
 Til ykkar sem þurftuð nánast að horfa á stjörnuna á mér í dag vil ég biðjast stórfelldrar afsökunar!
Bikiníið varð eftir í ruslinu í sundhöllinni og ég þarf greinilega að fara í sundfataleiðangur á morgun! 
Held að þessi strípihneigð mín sé komin úr böndunum. Fyrst fer ég nakin (og enn í sturtunni) til dyra og ætla (óvart) að hleypa ókunnugum manni inn og svo múna ég sundlaugargesti…
Þetta var mitt fyrsta og síðasta skipti sem gestur í þessari sundlaug.
Hvar mælir fólk með að maður kaupi sér hinsvegar ný sundföt? Er að gæla við sundbolakaup en hallast nú meira að bikiníunum.
sjálfsmynd af mér að máta sundbol í dag

-StrípiK

Sunday, November 3, 2013

Partý á Beggunni

Í nótt var brjálað stuð á Bergþórugötunni! 
Partý út um allar trissur og söngur langt fram undir morgun. Gleðin ómaði um hverfið og klikkað fjör! 
Svona myndi èg líklega segja frá gærnóttinni ef èg hefði verið að taka þátt í gleðskapnum! 
Kolbrún gamla var hinsvegar að reyna að sofa því það var ræs snemma til að fara í vinnu klukkan 8.
 Èg hrökk upp um fjögur leytið við óminn af eftirpartíum hjá íbúum hverfsins. 
Það var dinglað hjá mèr, en vegna fyrri reynslu ákvað èg að hleypa engum inn! Ég íhugaði að endurskoða ákvörðun mína eftir tuttugu mínútna bank djammarans, en stóð síðan föst á mínu! (Afstaðan hefði mögulega verið önnur ef mèr hefði verið boðið í eitthvað af þessum partíum!) 
Èg fann biturðina læðast aftan að mèr þar sem að èg hafði verið með gígantískann djammpúka á öxlinni allann gærdaginn. 
Eftir 2-3 klst svefn hrökklaðist èg í vinnuna, ósofin og ódjömmuð. Èg verð víst að bíða eftir næstu helgi svo èg geti fullnægt púka litla, hver veit nema það verði eftirpartý hjá mèr?!

Daman þegar hún var "yngri" (tekin rétt áður en ég varð 24 ára)
-GamlaKonan

p.s. var að smella yfir 2000 pageviews! Vei :)