Það gengur allt ótrúlega vel þessa dagana.
Matarræðið nokkuð gott og mér líður bara vel!
Mér finnst gaman að mæta á æfingar og þarf ekkert að drösla mér í ræktina, ég skoppa bara hress og kát þangað.
Áskorun síðustu viku var að fara oftar í Zumba.
Ég fór fjórum sinnum í Zumba í vikunni, ásamt því að taka lyftingarprógrammið með.
Áskorun vikunnar er að borða meira grænmeti!
Ég er einfaldlega allt of löt við það.
Ég veit ekkert hvernig vigtin stendur, ég er nefnilega í vigtunarbanni þangað til 29. ágúst.
Það verður spennandi að sjá hvað vigtin og mælingarnar hafa uppá að bjóða þá. Er mest að spá í cm og fituprósentu þessa dagana. Þið biðjið með mér að þetta sé á niðurleið!
-K
No comments:
Post a Comment